Skilmálar

Hvað Flugvaktin gerir, hvað hún gerir ekki, og hvernig þú hættir.

Hvað Flugvaktin gerir

Flugvaktin vaktar flugverð frá Keflavík og lætur þig vita þegar verð fer minnst 25% undir venjulegt verð leiðarinnar. Við seljum ekki flug og bókum ekki fyrir þig — þú klárar bókunina sjálf/ur hjá flugfélaginu eða bókunarsíðunni. Öll verð sem við birtum eru fyrir flug út og aftur heim.

Ókeypis áskrift og Flugvaktin Plús

Ókeypis áskrift sýnir tíu vinsælustu leiðirnar frá Keflavík. Flugvaktin Plús kostar 990 kr. á mánuði eða 9.900 kr. á ári og veitir aðgang að öllum leiðunum, óskaleiðum, verðsögu, verðvakt, ferðaplanara og bókunarhlekkjum. Reikningur er sendur í heimabankann og aðgangurinn opnast þegar greiðslan berst — það getur tekið allt að sólarhring.

Um verð og tiltæki

Flugverð geta breyst á nokkrum mínútum. Við ábyrgjumst ekki að tilboð sé enn í boði þegar þú smellir á hlekkinn eða að verðið á bókunarsíðunni sé það sama og hjá okkur. Við sýnum alltaf hvenær verðið var mælt.

Tölvupóstar

Áskrifendur fá tilkynningar þegar ný tilboð detta inn á óskaleiðum þeirra og þegar verð á vöktuðu tilboði breytist. Þar að auki má senda vikulegan póst með nýjustu tilboðunum. Hver verðvakt sendir í mesta lagi einn póst á sólarhring.

Ábyrgð á viðskiptum þínum

Við berum ekki ábyrgð á viðskiptum þínum við flugfélög eða bókunarsíður. Bókanir, breytingar, afbókanir og þjónusta eru mál þín og viðkomandi söluaðila.

Uppsögn og afskráning

Þú getur sagt upp Plús-áskriftinni hvenær sem er á Mínum síðum; þá falla ógreiddir reikningar niður og aðgangurinn helst út greitt tímabil. Þú getur afskráð þig af póstlistanum með einum smelli í hverjum pósti.

Rekstraraðili: Ofurkaup ehf. Skilmálar tóku gildi í september 2026.