Við vöktum flugverð frá Keflavík.Þú færð póst þegar frábær verð detta inn.
Flugvaktin skannar áfangastaði allan sólarhringinn og lætur þig vita þegar verðið fer langt undir það venjulega. Ókeypis að byrja.
Þú færð hlekk í póstinn til að staðfesta netfangið og sérð svo öll tilboðin. Enginn ruslpóstur.
Hvernig þetta virkar
Við leitum að verðunum
Við skönnum verð á flugi fram og til baka frá Keflavík — á öllum leiðunum sem við vöktum, yfir næstu átta mánuði og í nokkrum ferðalengdum. Markmiðið er einfalt: að finna bestu verðin sem eru í boði hverju sinni.
Við berum saman við verðsöguna
Við geymum verðsögu hverrar leiðar og hleypum aðeins í gegn verðum sem eru minnst 25% undir því sem leiðin kostar venjulega. Þess vegna færðu þrjú til fimm tilboð á viku en ekki langan lista af verðum sem líta bara vel út.
Þú velur það sem hentar þér
Þú færð leiðina, dagsetningarnar, verðið og hlekk beint í bókun. Við bókum ekki fyrir þig og seljum ekki flug — þú klárar bókunina sjálf/ur hjá flugfélaginu.
Flugverð geta breyst á nokkrum mínútum, svo við sýnum alltaf hvenær verðið var mælt. Við lofum ekki tilboði á hverjum degi — við lofum því að það sem við sendum hafi staðist 25% viðmiðið þegar við mældum það.
Svona líta tilboðin út
Dæmi um tilboð sem standast viðmiðin okkar. Ekki í boði núna.
Verð
Ókeypis
Enginn kortaupplýsingar, engin binding.
- Tíu vinsælustu leiðirnar frá Keflavík
- Póstur þegar verð fer minnst 25% undir venjulegt verð
- Óskaleiðir sem þú velur sjálf/ur
- Tilboðin berast sólarhring á eftir Plús-áskrifendum
- Hlekkur beint í bókun
- Verðsaga með línuriti
- Verðvakt á þínum leiðum
- Ferðaplanari
Flugvaktin Plús
Í boði núnaeða 9.900 kr. á ári — tveir mánuðir fríir
- Allar 105 leiðirnar frá Keflavík
- Póstur þegar verð fer minnst 25% undir venjulegt verð
- Óskaleiðir sem þú velur sjálf/ur
- Tilboðin um leið og þau finnast — engin bið
- Hlekkur beint í bókun hjá flugfélaginu
- Verðsaga hverrar leiðar með línuriti
- Verðvaktir sem láta þig vita þegar verðið hreyfist
- Ferðaplanari: flug, hótel, bíll, töskur og heildarverð (og verð á mann)
Algengar spurningar
Hvað kostar þetta?+
Ókeypis áskriftin er og verður frí. Flugvaktin Plús kostar 990 kr. á mánuði eða 9.900 kr. á ári — þá færðu tvo mánuði fría. Þú færð reikning beint í heimabankann og aðgangurinn opnast um leið og hann er greiddur.
Hvað fæ ég í Plús?+
Öll tilboðin á öllum leiðunum, hlekk beint í bókun, verðsögu hverrar leiðar með línuriti, óskaleiðir sem þú velur sjálf/ur, allt að þrjár verðvaktir sem leita sjálfar að bestu verðunum innan þíns tímabils, vöktun á einstökum tilboðum og ferðaplanara með flugi, hóteli, bílaleigubíl, töskum og samtölu á mann.
Hvað er verðvakt?+
Þú velur áfangastað, tímabil sem þú getur ferðast á, lengd ferðar og fjölda farþega. Við leitum þá sjálf einu sinni á dag og sýnum þér þrjú bestu verðin — og sendum póst þegar verðið lækkar. Þú getur líka vaktað eitt ákveðið tilboð og fengið póst ef verðið á því hreyfist.
Get ég skráð mínar eigin leiðir?+
Já, óskaleiðir eru hluti af Plús. Þú merkir leiðirnar sem þú hefur áhuga á og sérð tilboð á þeim sér í lagi á tilboðasíðunni.
Hversu marga pósta fæ ég?+
Þrjú til fimm tilboð verða send 1x á viku í mesta lagi frá tilboðunum. Verðvaktin sendir í mesta lagi einn póst á sólarhring.
Bókið þið flugið fyrir mig?+
Nei. Við finnum verðið og sendum þér hlekkinn. Þú klárar bókunina sjálf/ur hjá flugfélaginu eða bókunarsíðunni.
Hvaðan koma tilboðin?+
Við skönnum verð á flugi fram og til baka frá Keflavík á öllum leiðunum sem við vöktum, yfir marga mánuði fram í tímann, og berum þau saman við það sem er venjulegt á sömu leið og sama ferðamánuði.
Get ég hætt hvenær sem er?+
Já. Þú segir upp með einum smelli neðst á Mínum síðum — ógreiddir reikningar falla niður og aðgangurinn gildir út greidda tímabilið.