Persónuverndarstefna

Stutt og skýrt: hvað við söfnum, til hvers og hvernig þú færð það eytt.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Netfangið þitt og skráningardag. Ef þú býrð til aðgang geymum við einnig nafn (ef þú gefur það upp), óskaleiðir, verðvaktir og ferðaplön sem þú býrð til sjálf/ur. Plús-áskrifendur gefa auk þess upp fullt nafn og kennitölu vegna greiðslu.

Til hvers upplýsingarnar eru notaðar

Til að senda þér flugtilboð og tilkynningar um verðbreytingar, til að sýna þér efni sem passar áskriftinni þinni og til að innheimta Plús-áskriftina. Við notum þær ekki í neitt annað.

Hvar gögnin eru geymd og hvaða þjónustur við notum

Gögnin eru geymd í gagnagrunni innan ESB/EES. Tilkynningapóstar eru sendir í gegnum póstþjónustu okkar, markaðspóstlistinn er hýstur hjá MailerLite og reikningar eru stofnaðir í gegnum Payday. Flugverð eru sótt frá utanaðkomandi leitarþjónustu án persónuupplýsinga.

Við deilum aldrei netföngum

Við seljum aldrei netföng og deilum þeim ekki með þriðja aðila umfram þær þjónustur sem nefndar eru hér að ofan og eru nauðsynlegar til að reka þjónustuna.

Kennitala Plús-áskrifenda

Kennitalan er eingöngu notuð til að stofna kröfu í heimabankann þinn. Hún er aldrei seld, birtist hvergi í viðmótinu eftir að hún er vistuð og er geymd á meðan áskriftin er virk og í allt að sjö ár eftir það, eins og bókhaldslög krefjast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á afriti af gögnunum þínum og að láta eyða þeim. Sendu okkur línu í gegnum hafa samband og við afgreiðum beiðnina eins fljótt og unnt er.

Afskráning

Þú getur skráð þig af póstlistanum með einum smelli í hverjum pósti. Þá hættum við að senda þér tilboð og netfangið er merkt afskráð hjá okkur og hjá póstþjónustunni.

Rekstraraðili: Ofurkaup ehf. Stefnan tók gildi í september 2026.